Fyrirhugað er að hafa stöðupróf fyrir knappamerki 1. fljótlega.
Þeir sem hafi áhuga endilega hafið samband við Simma í s. 8664674 og fáið nánari uppl.
mánudagur, 5. mars 2012
miðvikudagur, 22. febrúar 2012
Félagsmenn.
Til félagsmanna í Hestamannafélaginu Glæsi.
Sunnudaginn 12. febrúar var framhaldsaðalfundur hjá félaginu. Á þeim fundi var skipuð starfsstjórn sem ætlar að taka að sér ákveðin verkefni.
1) Hagsmunagæslu gagnvart bæjaryfirvöldum vegna skipulags í Hólsdal.
2) Frágangur á rafmagnsmálum.
3) Innanfélagsmót til fjáröflunar fyrir félagið.
4) Barna og unglingastaf er snýr að “æskan og hesturinn” og sumarnámskeið.
Önnur mál eru ekki á dagskrá en þeir félagsmenn sem óska eftir að félagið ráðist í önnur verkefni er bent á að taka þau upp á félagsfundum sem boðaðir verða.
fimmtudagur, 16. febrúar 2012
Reiðleiðir Landsambands Hestamannafélaga
fimmtudagur, 9. febrúar 2012
Bleika Töltmótið
Þann 19. Febrúar munum við Fáks konur halda í annað sinn Bleika tölt mótið til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, við færðum Krabbameinsfélaginu 500.000 þúsund í fyrra og langar að gera enn betur í ár mótið verður hið glæsilegasta vegleg verðlaun verða í boði, við bjóðum upp á 4 flokka aldurstakmark er 17 ára.
Félagsmenn!
Kæru félagsmenn!
Vegna lélegrar mætingar á aðalfundinum í kvöld fimmud. 9 feb.
Hefur verið ákveðið að halda famhaldsaðalfund á sunnudaginn 12 feb. Kl 17:00.
Þangað til verður reiðskemman lokuð öllum félagsmönnum þangað til
að þeyr sýni félaginu virðingu og mæti á aðalfund.
Kv. Kristín Úlfsdóttir form.
sunnudagur, 5. febrúar 2012
Aðalfundur Glæsis.
Kæru félagar.
Ákveðið hefur verið að halda aðalfund fimmtudaginn 9 feb kl 20:00
í Glæsibæ.Vonast ég til að sem flestir mæti.
Kosið verður ný stjórn og nú hjálpast allir að að finna nýja stjórnarmenn.
Núverandi formaðu ætlar EKKI að sitja áfram!!!!!!
Kv. Kristín Úlfsd. form.
föstudagur, 3. febrúar 2012
Tamningarnámskeið
12 janúar byrjaði tamningarnámskeiðið og voru það 9 félagsmenn í 3 hópum sem hittust 2 í viku í 5 skipti.
Þorsteinn Björnsson kennari á Hólum sá um kennsluna. Hér koma nokkrar myndir sem Fríða tók:) af áhugasömum nemendum og kennara. Fyrirhugað er að vera með námskeið í Knappamerkjum, en sami kennari mun sjá um það:) nánar auglýst síðar.
Þorsteinn Björnsson kennari á Hólum sá um kennsluna. Hér koma nokkrar myndir sem Fríða tók:) af áhugasömum nemendum og kennara. Fyrirhugað er að vera með námskeið í Knappamerkjum, en sami kennari mun sjá um það:) nánar auglýst síðar.
fimmtudagur, 2. febrúar 2012
föstudagur, 27. janúar 2012
Námskeið í hestanuddi
Til stendur að halda námskeið í hestanuddi á Siglufirði ef næg þátttaka fæst, helgina 25-26 febrúar, næstkomandi. Kennari er Catrin Annica Engström.
Námskeiðið stendur frá 9 - 16 á laugardeginum. Þá er bóklegur tími, vöðvafræði, ástæður fyrir nuddmeðferð og fleira. Dagurinn endar á því að skoða hvar beinagrindin er í hestinum til að undirbúa nuddið. Farið verður í að skoða og ræða hnakkamál og hægt er að koma með hnakkinn sinn til að láta kíkja á hann.
Á sunnudeginum er byrjað kl 10, hver og einn kemur með sinn hest. Farið verður yfir gripin og kennarinn fer á milli og hjálpar. Dagurinn endar svo með sýnikennslu i teygjuæfingum. Hver og einn fær bækling með sig heim.
Á sunnudeginum er byrjað kl 10, hver og einn kemur með sinn hest. Farið verður yfir gripin og kennarinn fer á milli og hjálpar. Dagurinn endar svo með sýnikennslu i teygjuæfingum. Hver og einn fær bækling með sig heim.
Námskeiðið kostar kr.19.200 per nemanda og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða verður staðfestingargjald kr. 6000 við skráningu. Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19.febrúar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


.jpg)