miðvikudagur, 9. júní 2010

Reiðnámskeið hefst 20. júní

Reiðnámskeið á vegum Topphesta ehf. fyrir börn 6 ára og eldri hefst 20.júní og endar 25.júní á svæði Glæsis

Námskeiðið er 6 dagar.
Verð 15.000kr og 12.000kr fyrir Glæsiskrakka

Upplýsingar og skráning í síma: 868-1776
Inga Dóra

þriðjudagur, 11. maí 2010

Fjölskyldudagur 24. maí n.k.

Fyrirhugað er að halda hópreið og grill annan í hvítasunnu. Lagt verður af stað í reiðtúrinn kl. 16:00 og er þessi ferð fyrir alla, börn og fullorðna.
Grillað verður svo sameiginlega eftir reiðtúrinn og gleði og gaman.

fimmtudagur, 29. apríl 2010

Æskan og hesturinn

Æskan og hesturinn sem átti að vera núna 1.maí hefur verið frestað um óáhveðin tíma. Hringt var í kvöld og látið vita af því.

miðvikudagur, 21. apríl 2010

fimmtudagur, 15. apríl 2010

Æskan og hesturinn - Æfing á þriðjudaginn 20. april kl.18:00

Lisa kemur og við höldum áfram að æfa. Einnig verður ákveðið með búninga, en það hefur verið stungið upp á kúrekaþema.

þriðjudagur, 6. apríl 2010

mánudagur, 29. mars 2010

Æskan og hesturinn - Æfing á þriðjudaginn 30. mars fellur niður

Því miður fellur æfingin sem vera átti á morgun niður, en við munum hittast fljótlega eftir páska og æfa á fullu.

miðvikudagur, 24. mars 2010

Tilkynning frá Landsmóti 2010

Unga fólkið hvatt til  þátttöku í verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar!

Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.

Mælst er til að unga fólkið skarti félagsbúningi sínum við afhendinguna og geta áhugasamir haft samband við æskulýðsnefndir hestamannafélaganna en einnig er hægt að senda póst á landsmot@landsmot.is.

Í póstinum þarf að koma fram nafn og aldur ásamt upplýsingum um hvaða hestamannafélagi viðkomandi tilheyrir.

þriðjudagur, 16. mars 2010

Krakkar


Æskan og hesturinn verður 1. maí n.k.
Lísa ætlar að sjá um þjálfun sem hefst föstudaginn
19. mars kl. 17:30 reiðhöllinni.


Laugardaginn 20. mars verður hátíð í Glæsibæ kl. 18:00
Pizzuveisla fyrir börnin – frítt.
Siginn fiskur fyrir fullorðna -  kr. 1500.

Reiðnámskeið helgina 20. og 21. mars

Lisa Rist mun halda námskeið á félagssvæði Glæsis. Aðeins 3 nemendur í hóp, en skipt verður í hópa eftir þörfum hvers og eins. Nemendur sem hafa á huga á aðstoð við undirbúning undir keppni eða almennt reiðnámskeið.

Kennt verður í  2 skipti.

kr. 6.000 fyrir félagsmenn.
kr. 8.000 fyrir utanfélagsmenn.



Hægt er að skrá sig á námskeið í Glæsibæ og á
nefangið sigga@primex.is