Námskeið í hestanuddi
Til stendur að halda námskeið í hestanuddi á Siglufirði ef næg þátttaka fæst, helgina 2-3 júlí, næstkomandi.  Kennari er Catrin Annica Engström.
Námskeiðið stendur frá 9 - 16 á laugardeginum. Þá er bóklegur tími, vöðvafræði, ástæður fyrir nuddmeðferð og fleira.  Dagurinn endar á því að skoða hvar beinagrindin er í hestinum til að undirbúa nuddið.  
Á sunnudeginum er byrjað kl 10, hver og einn kemur með sinn hest. Farið verður yfir gripin og kennarinn fer á milli og hjálpar. Dagurinn endar svo með sýnikennslu i teyjuæfingum. Hver og einn fær bækling með sig heim. 
Námskeiðið kostar kr.17.000 per nemanda og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða verður staðfestingargjald kr. 6000 við skráningu.  Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net.
 
Engin ummæli:
Skrifa ummæli